Frábært Liverpool vikabonoman
Fyrir viku síðan var ég að drulla á mig af spenningi og búa mig undir vonbrigði því Liverpool voru að fara að spila seinni leikinn við Real í Meistaradeildinni og svo ManUtd á OldTrafford sem að hefur verið ávísun á ömurlegheit undanfarin ár.En viti menn Liverpool tóku Real í kennslustund og unnu 4-0. Og ef að sá sigur var sætur að þá var enn betri stund framundan. ManUtd framundan og þeir búnir að vera á svaka rönni undanfarnar vikur. Og ekki batnaði svipurinn á kallinum þegar þeir komust yfir 1-0 úr víti. En Liverpool eru með Torres og Gerrard og þeir eru fucking deadly duo. Torres lét Vidic líta út fyrir að vera byrjanda í faginu og Liverpool unnu á endanum frekar léttan 1-4 sigur sem að hefði getað verið stærri ef menn hefði getað klárað færin sem þeir fengu. Ég mæli með að menn lesi þetta og horfi á þetta.
Ég horfði á leikinn hérna einn heima. Kristín flúði út í búðir á meðan og ég held að hún hafi ekki séð eftir því. Ég stóð upp og öskraði og fagnaði eins og enginn væri morgundagurinn þegar Liverpool skoruðu. Kannski nágrannarnir hafi vaknað við þetta. Fyrir ykkur sem getið ekki ímyndað ykkur hvernig sjón þetta var getið horft á þetta video :)
Svo til að toppa gleði mína að þá kemur gamli rauðfés með þetta comment eftir leik. Iss sumir bara taka ekki eftir því þegar þeir hafa verið teknir þurrt í rassgatið muhahaha :)
Robbie Keane farinn!bonoman
Hvern hefði grunað það að maður hefði fagnað Febrúar? En það er satt, ég er farinn að fagna því að Febrúar er kominn og helvítis Janúar er búinn og liðinn.
Janúar var ömurlegur í nánast alla staði(fyrir utan þó ákveðna heimsókn sem var awesome). Það var dimmt og rigning og allir fátækir og mikið vonleysi og þunglyndi í gangi allstaðar. Mótmæli útum allt og allt að verða vitlaust bara.
En samt mestu vonbrigðin samt voru þau að Liverpool vann ekki leik í allan Janúar. Tapaði að vísu ekki heldur en þeir gerðu bara leiðinleg jafntefli. Stundum held ég að leikmenn Liverpool þjáist af skammdegisþunglyndi því þeir geta yfirleitt aldrei neitt í janúar.
En nú er semsagt kominn Febrúar og það er strax orðið betra, ný ríkisstjórn, meiri birta og snjór sem að eykur allavega á birtuna þó honum fylgi smá vesen annað. En núna þá fagnar maður snjó alveg eins og maður fagnar Febrúar.
En samt það besta við Febrúar hingað til samt er það að Liverpool unnu Chelsea í gær og Torres er byrjaður að skora aftur. Jesús hvað ég stökk upp og fagnaði mikið þegar hann skoraði í gær. Ég held að öll blokkin héna hafi heyrt í mér 
Svo kom önnur gleðifréttin í dag að þeir losuðu sig við Robbie Keane sem að eru einhver alverstu kaup sem Liverpool hafa gert. Klárlega átti maðurinn ekkert erindi í hópinn og því algjör snilld að losa sig við kvikindið!

Þegar þessi mynd var tekin í upphafi var maður alveg viss um að þetta væru kaupin sem að okkur vantaði til að skora fleiri mörk en maðurinn bara passaði aldrei inní liðið. Hann var alltaf að væla við minnsta tilefni og svo ef að hann komst í gott færi og fékk boltann að þá hitti hann aldrei boltann eða skaut eitthvert lengst framhjá eða kom með einhvert ömurlegt skot laflaust á markmanninn.
Maðurinn var einfaldlega rusl. Heyrirðu það Konni hann er rusl eins og Beckham og Real Madrid, þetta er bara rusl og farið hefur fé betra!! 
Mér leiðist.....bonoman
Mér leiðist endalaust vesen og rugl í pólitíkinni, það er allt að fara til fjandans þar. Mikið óöryggi og allt í háaloft. Á meðan kostar þetta rifrildi þessara pólitíkusa okkur milljónir á milljónir ofan.
Mér leiðist janúar, það er klárlega leiðinlegasti mánuðurinn á árinu. Mesta myrkrið, mesta þunglyndið og Liverpool getur ekki unnið svo mikið sem einn fokking leik í janúar.
Mér leiðist snjór(sem reyndar hefur varla sést ennþá í vetur) og hálka. Ég þoli ekki að labba á svelli!
Mér leiðist mánudagar. I don't like mondays I wanna shoot the whole day down!
Mér leiðist blogg, það eru allir hættir að blogga. Kannski maður ætti að hætta bara líka?
Mér leiðist fólk með gervibros. Ég þoli ekki að þurfa að setja upp gervibros og segja góðan daginn þegar ég meina það ekki. Mér er bara skítsama hvernig dagurinn er hjá öðru fólki(nema fjölskyldu og nánustu vinum reyndar) og ég veit að innst inni er fólki alveg sama hvernig dagurinn er hjá mér.
Mér leiðist að þurfa að sofa og jafnvel þegar maður fer snemma að sofa á sunnudegi að þá er maður samt ógeðslega þreyttur og úrillur á morgnanna. Ég held ég hætti að fara snemma að sofa. Nú verður bara max 5 tímar og þá hefur maður ekki tíma á nóttunni til að festa almennilega svefn og þá er smá séns að maður vakni ekki eins úrillur. Gott plan?
Afmælisvikan :)bonoman
Þá er afmælisvikan búin og ég sit hérna heima veikur alveg gífurlega reyktur. Ég gæti næstum því speisað yfir málningu þorna núna 
En afmælisvikan hófst semsagt með óvæntri heimsókn frá Robba og Guðnýju. Á miðvikudaginn átti ég von á að vinur þeirra kæmi með pakka sem þau sendu hann með til Íslands. Viti menn það var dinglað hérna uppúr kl.18 og þá stóðu þau bara þarna og brostu sínu breiðasta. Já sæll er þetta raunverulegt hugsaði ég og prufaði að loka hurðinni og blikka augunum nokkrum sinnum og viti menn þau stóðu þarna ennþá þegar ég opnaði aftur og brostu enn breiðar. Þau voru víst búin að plana þetta í næstum heilt ár. Kom á daginn að allt sem þau voru búin að bölva því að komast ekki í afmælið mitt var bara plat og allt gert til að blekkja mig og það tókst helvíti vel verð ég að segja. Ekki grunaði mig neitt 
Svo þegar Kristín kom heim þá tók við að koma henni á óvart þó hún segist reyndar hafa grunað þetta en það trúir því ekki nokkur einasti maður!
Þar sem að the awesome fours voru aftur sameinuð þá þurfti auðvitað að opna pakkana sem ég átti að fá, þó að mér fannst þetta bara helvíti góð gjöf að fá þau heim en það er annað mál. Ég fékk semsagt fyrri hlutann af gjöfinni frá Kristínu því það var Fifa 09 sem ég var búinn að suða um í 4 mánuði eða eitthvað og það varð auðvitað að spila með Robba fór sjúre 
Svo á fimmtudeginum að þá vorum við búin að bjóða Óla í mat en hann vissi ekkert að þau skötuhjú væru komin. Hann var reyndar aðeins að spá í af hverju það væri svona mikill matur en það var þaggað niður um leið. Eftir matinn fórum við að spila Íslandsspilið sem var æðislega gaman.
Föstudagurinn fór mest í að undirbúa partýið sem átti að vera á laugardeginum, við keyptum restina af hlutunum sem við ætluðum að nota og gerðum íbúðina partýhæfa með því að lágmarka allt dót sem var á sveimi og það liggur við að maður setji plastdúk yfir alla íbúðina þegar maður býður póstmönnum heim í bjór 
Svo kom laugardagurinn og hann var bara rólegur framan af því við vorum búin að undirbúa svo vel á föstudeginum. Elliði kom og horfði á Liverpool leikinn og við kíktum í Fifa áður en gestirnir komu og reyndar vorum við að spila Fifa þegar fyrsti gesturinn kom en það er annað mál. Svo fór fólkið að flykkjast inn og það virtist endalaust þetta fólk sem að kom og mikið rosalega er ég þakklátur fyrir það. Við töldum ekkert inn eða neitt en ég gæti trúað því að eitthvað um 50 manns hafi verið hérna inni í góðum gír. Síðustu gestirnir fóru eitthvað um kl.3 um nóttina og þá var ég bara alveg búinn á því og datt bara ofaní rúmið mitt og svaf og svaf.
Sunnudagurinn var frekar slappur því ég var farinn að finna fyrir einhverjum kvef/flensu skít á laugardagskvöldinu og ég bara lá undir sæng meirihlutann af sunnudeginum og skalf og skalf úr kulda.
Ég gat ekki hugsað mér að mæta ekki í vinnuna á afmælisdeginum mínum og hvað þá á mánudegi eftir djamm svo ég fór bara, var ekkert svo slappur á Sunnudagskvöldinu og Mánudagsmorgninum svo ég bara lét vaða. Tók bara verkjatöflur og eftir mjög heita sturtu var ég bara góður og good to go. Afmælisdagurinn í vinnunni var bara fínn en eitt þó vandræðanlegt sem gerðist var að það var sungið fyrir mig í mötuneytinu. Það var verulega kjánalegt og vandræðalegt en sem betur fer voru fáir í mötuneytinu þá og mest bara lið af skrifstofunni og Tollmiðlun sem ég þekki vel. Annars fór mikið af deginum í að taka í hendurnar á fólki þegar það var að óska mér til hamingju með daginn sem var flott. Við ætluðum að fara með Robba og Guðnýju á Ruby Tuesday í kvöldmat en sökum lítillar heilsu á öllum íbúum(nema Kristínu reyndar) var ákveðið að elda frekar piparsteik heima þetta kvöld. Mikið rosalega var hún góð og Kristín stóð sig einstaklega vel við eldamennskuna eins og vanalega. Einhvernveginn hefur nautakjöt verið pínu vandamál að ná réttri steikingu, hefur oft verið annaðhvort alveg dökk rautt eða bara svart en núna með hjálp nýju grillpönnunar þá tókst þetta rosalega vel.
Eftir matinn fórum við Robbi í Fifa sem var rosa stuð eins og vanalega en ég fór að finna fyrir kuldanum aftur og endaði afmælisdaginn minn á því að liggja fullklæddur undir sæng með hitapoka annaðhvort að drepast úr kulda eða stikna úr hita. Hitaelementið hjá mér er ekki alveg í lagi þessa daganna. Því fór ég ekkert í vinnuna í dag, var bara heima og nú líður mér mikið betur allavega. Vonandi endist það lengur svo ég geti nú farið í vinnuna á morgun og farið að spreða öllu sem ég á inni í Kringlunni og Smáralind og svona. Ég fékk alveg helling af inneignarkortum og eins líka ávísun frá Póstmiðstöð sem að kemur sér vel á næstunni. Nú skal farið og spreðað!
Já sæll gugga að smíða geimflaugar!bonoman
Einhver var að heimta nýtt blogg ég ætla að reyna að setja niður nokkur orð.Ég er ennþá með mikla leið á þessu efnahagsástandi. Þó það hafi ekki haft bein áhrif á okkur þá er bara svo helvíti leiðinlegt að hlusta á þetta væl alla daga. Allir fréttatímar og allar samræður manna á milli fara í þetta. Ég var kominn með leið á þessu á degi 2 og það stendur enn. Á meðan pólitíkusar rífast um þetta og gera ekki neitt þá stendur hinn almenni borgari eftir með sárt ennið og getur ekkert gert. Svo ekki sé nú talað um fólkið sem er statt í útlöndum. Til dæmis þekkir maður nokkra stúdenta sem hafa það ekki svo gott

Eins og ég sagði áður þá hefur þetta ekki haft nein bein áhrif á okkur. Við erum eiginlega bara að jafna okkur á flutningunum sem að hafði og hefur enn með sér mikinn aukakostnað. Útaf af því þá þarf fólk eins og við sem er með strax veikina á háu stigi að vera þolinmóð sem er oft erfitt. En þetta kemur alltsaman. Þetta reddast.
Ég hef komist að því að ef ég sef minna en 7klst á sólarhring þá er oft erfitt að halda augunum opnum í vinnunni daginn eftir. Ótrúlegt en satt. Ég veit að ég er örugglega fyrstur til að átta mig á þessu. En það er bara svooo erfitt að fara snemma að sofa. Af hverju þarf maður að sofa? Af þurfum við að sóa 1/3 af sólarhringnum í svefn og hlaða batteríin? Væri ekki flott að vera einn í heiminum á nóttunni á meðan aðrir sofa þá gæti maður horft á video eða spilað manager eða eitthvað skemmtilegt? Best væri auðvitað ef þið hin þyrftuð að sofa en ég gæti vakað endalaust

Æji nú er ég farinn að bulla aðeins. Ætli sé ekki best að fara aftur að vinna....hmmmmmm........tja maður spyr sig. Nei ég ætla að fara að sofa bara. Nei ég tek ekki sénsinn, vil ekki vera rekinn og missa íbúðina. Bara harka af sér og fá sér kaffi

Ergh!bonoman
Djöfull er ég kominn með leið á helvítis djöfulsins andskotans efnahagsumræðunni!!!!!!Flétt í Lauifbonoman
Jæja er eitthvað búið að gerast síðan síðast..hmmm....jú nú man ég við keyptum íbúð og svo fór Ísland á hausinn. Það er nú ágætt alveg. Ég er nokkuð viss um að þetta sé ekkert tengt.Við lentum nú svosum í ýmsu við flutningana. Planið var upphaflega að mála og leggja parketið á á viku eða tveim og skila svo bara Flétturimanum í rólegheitum. Svo benti pabbi hennar Kristínar okkur á að við myndum græða mikið ef við myndum ná að skila Flétturimanum fyrir mánaðarmótin síðustu og það tókst en þá þurftum við að fóna parketinu í bili. Það verður sett á um helgina og eftir það getum við loksins farið að raða almennilega í pleisið :)
Þið sem hafið nægan tíma og einstakan áhuga á fjölskyldunni okkar að þá getiði séð myndir inná www.hneta.myphotoalbum.com .
KoLbonoman
Ég sit hérna einn heima á laugardagskvöldi með slökkt öll ljós og Tv á mute með Kings of Leon í eyrunum. Ég bara verð að segja að Kings of Leon er að verða ein uppáhaldshljómsveitin mín. Nýjasti diskurinn hjá þeim heitir Only By The Night og hann er algjör snilld. Ég er búinn að hlusta á hann tvisvar eða þrisvar og hann er algjörlega frábær. Það er bara eitthvað við þessa rödd í söngvaranum sem að er alveg geggjað!Annars erum við bara að bíða þessa daganna eftir að fá afhent nýju íbúðina. Við erum búin að fá lyklana að geymlsunni, gaurinn var ekkert að nota hana svo við fengum bara lykla og getum byrjað að flytja kassa á milli þegar okkur hentar eiginlega. Við fáum svo lyklana að íbúðinni líklega á miðvikudaginn en pottþétt á föstudaginn í seinasta lagi. Þá er planið að mála og parketleggja og afhenda okkar svo fyrir mánaðarmót þannig að það verður fjör á okkar 'heimilum' í næstu viku það er pottþétt
En endilega tékkið á Kings of Leon, þeir hafa gefið út 4ra diska: Youth and young manhood, Because of the times, Aha Shake Heartbreak og núna Only by the night. Ég mæli með öllum þessum diskum.
Klukk ótrúlegt en sattbonoman
Ég man ekki eftir að hafa verið klukkaður áður, allavega hef ég ekki gert neitt í því fyrr en núna. Var líka klukkaður af 2 vinum sem að eykur aðeins á pressuna.En here goes.....
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Unglingavinnan
Bæjarvinnan
Skrifstofuvinna hjá Pabba
Íslandspóstur
Fjórar kvikmyndir sem ég held upp á:
Back to the Future
Office Space
JFK
Seven
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Breiðholt
Njálsgatan(í einn mánuð)
Grafarvogur
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Seinfeld
Curb your Enthusiasm
24
Simpsons
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Liverpool
Thailand
London
Aalborg
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
Facebook.com
Kop.is
Mbl.is
Fotbolti.net
Fernt sem ég held upp á matakyns:
Mexicanskar pönnsur
Lambalæri
Hamborgari
Pizza
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Liverpool
Nýju íbúðinni okkar
Við sundlaugarbakkann í Thailandi
Á góðum tónleikum með pissvolgann bjór í hönd
Fjórar bækur sem ég les oft:
Uhh bækur segirðu, ég bara bíð eftir myndinni og downloada henni :)
Ég ætla að klukka Kristínu, Guðnýju, Robba(af því að það er kominn tími á blogg hjá honum og Gústa.
Fyrirsögn segirðu...hmmmm.......æjifuckitbonoman
Ég er búinn að vera á leiðinni að gera nýtt blogg í margar vikur. En alltaf þegar ég ætla að byrja og fer inná síðuna að þá sé ég gaurinn hérna fyrir neðan detta á hausinn og fer að hlæja og dett úr öllu bloggstuði. Það er bara eitthvað svo einfalt og fyndið við þetta grínAnnars var ég að spá í hvað er búið að gerast síðan síðasta bloggaði síðast. Útborgunin og vaxtabæturnar komu og fóru og nú bíður maður eftir næstu útborgun. Alveg magnað hver maður getur alltaf eytt miklum pening!
Við Kristín tókum mikla ákvörðum og byrjuðum aðeins að setja hana í gang. Málið er að Kristín ætlaði alltaf að reyna að taka masterinn úti sem myndi þýða það að við myndum flytja út(helst til Bretlands) í allavega ár með tilheyrandi kostnaði og skuldum. Þegar við vorum hvað heitust í þessu þá var ég að mygla í vinnunni og eiginlega going nowhere svo það var mjög spennandi að kýla á þetta. En nú er ég kominn í of góða stöðu í vinnunni og Kristín byrjuð í vinnu sem henni líkar mjög vel í líka svo við ákváðum að í staðinn fyrir að fara út í nám stefnir hún að því að taka masterinn hérna heima en áður en að því kemur ætlum við að reyna að kaupa nýja íbúð, stækka semsagt við okkur. Þess vegna höfum við sett íbúðina á sölu og bíðum eftir viðbrögðum. Alveg var nú dæmigert að nokkrum dögum eftir að íbúðin fór á sölu var frétt á mbl um að vikan hefði verið sú allra rólegasta í fasteignaviðskiptum í sögunni. En okkur liggur ekkert á þannig séð og höldum í vonina að einhver vilji kaupa íbúðina okkar
Annars tók stóri bróðir sig til að keypti sér íbúð loksins. Svo til hamingju með það. Hann verður orðinn nágranni minn fyrir jól allavega sem verður gaman.
Ég er búinn að vera í fríi þessa vikuna. Þetta er síðasta fríið mitt í bili allavega, ætla að eiga frí inni þegar og ef við seljum/kaupum íbúðina.
Ég er búinn að vera að horfa á ólympíuleikana allan daginn þessa vikuna en hef ekkert horft á handboltann ennþá. Ég er búinn að komast að því í gegnum árin að um leið og ég fer að horfa á leikina tapast þeir. Svo ég ætla hér með að gera þjóðinni og landsliðinu greiða með því að horfa ekkert á handboltann svo þeir eigi séns á fleiri sigrum.